Núverandi vinstristjórn hefur amast mjög við stóriðju og virkjanaframkvæmdum en að sama skapi hvatt til atvinnuuppbyggingar í ferðamannaþjónustu. Á dögunum lýsti kínverski fjárfestirinn Huang Nubo yfir áhuga á að kaupa jörðina Grímsstaði á Fjöllum og fjárfesta þar fyrir tugi milljarða króna í aðstöðu fyrir ferðamenn, með sérstakri áherslu á vetrarferðir. Lengi hefur skort á stóra fjárfestingu í þessarri atvinnugrein, en þá hefur hefur það verið samdóma álit manna að brýnt væri að lengja ferðamannatímann og fá ferðamenn hingað til lands á vetrum. Vinstriflokkarnir hafa meira að segja lagt áherslu á þessi tvö atriði í stefnuskrám sínum Það er því eins og umrædd fjárfesting sé klæðskerasniðin að áherslum vinstriflokkana í atvinnumálum. En þrátt fyrir þetta er amast við fjárfestinum og sér í lagi á þeirri forsendu að hann sé útlendingur. Hérlendir stjórnmálamenn hafa almennt verið tortryggnir í garð Huang Nubo.
Andúð róttækra vinstrimanna á erlendri fjárfestingu er vel kunn, en hins vegar kveður við nýjan tón hjá Bjarna Benediktssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins, þegar hann segir það ekki sjálfsagt að útlendingar geti keypt stórar jarðir hér á landi. Frjálshyggjufélagið fordæmir ummæli Bjarna. Með ummælum sínum er hann kominn í flokk með Ögmundi Jónassyni og Lilju Mósesdóttur sem amast hafa hvað helst við Huang Nubo.
Erlend fjárfesting er lykilatriði í framtíðarvelgengni íslenska þjóðarbúsins. Nóg er að líta til sögunnar. Eitt mesta framfaraskeið í atvinnumálum hér á landi var í byrjun tuttugustu aldar þegar erlendir aðilar komu á fót banka sem hóf að lána til atvinnuuppbyggingar. Það er háskaleg þróun ef þjóðernishyggja og sósíalismi eru orðin aðalviðmiðin í íslenskum stjórnmálum, þar sem ofuráhersla er lögð á að vernda sérhagsmuni innlendra aðila og bægja útlendingum frá. Stefna af þessu tagi mun ekki leiða annað en örbirgð yfir þjóðina.
Reykjavík, 6. september 2011
Stjórn Frjálshyggjufélagsins





